Hópar,keppni, matur & stemning.

Ein bókun, ein upplifun. Við sjáum um leikina, matinn, drykkina og stemninguna.

12 til 250 manns Minigolf eða píla innifalin Ekkert greitt strax

Matur, leikur og fjör, í einum pakka.

Öll hópatilboð innihalda 18 holu minigolf eða 85 mín. pílu. Gildir fyrir 12 manns eða fleiri.

Drykkir
  • Gos 498 kr.
  • Bjór (0,5L) 1.398 kr.
  • Léttvínsglas 1.398 kr.
  • Kokteill 2.698 kr.
  • Skot 1.298 kr.

Þið veljið, við sjáum um restina.

Veljið pakka og fjölda

Veljið pakkann, leikinn og hvað þið eruð mörg. Verðið reiknast um leið.

  • 12 til 250 manns
  • Báðir leikirnir? 10% af leikjunum

Tilboðið kemur til ykkar

Sendið fyrirspurn með óskadegi og tíma. Við staðfestum framboðið í tilboðinu sem við sendum ykkur.

  • Ekkert greitt strax
  • Öllu má breyta, engin skuldbinding

Mætið og njótið

Leikurinn, maturinn og drykkirnir bíða ykkar. Þið þurfið bara að mæta.

  • Ein bókun fyrir allan hópinn
Fullur salur á Minigarðinum

Hópefli og árshátíðir, fyrir allt fyrirtækið.

Deildardjamm, hópefli eða árshátíð. Við setjum saman kvöldið, þið mætið með hópinn.

  • Frá 12 upp í 250 manns, í einni bókun
  • Fyrirtækið greiðir: kennitalan fer með og nafnið fyllist úr fyrirtækjaskrá
  • Ekkert greitt strax, öllu má breyta
  • Minni hópur? Stella Artois svítan er einkarými fyrir allt að 16 manns

Tilboð fyrir yngri hópa.

Íþróttalið, skólahópar og barnaafmæli. Minigolf, matur og drykkur á einu verði.

Minigolfbrautirnar á Minigarðinum

Íþrótta- og skólahópar

Fyrir 12–16 ára

4.498 kr. á mann

  • 18 holu minigolf
  • 120 g hamborgari með osti, sósu, káli og frönskum, eða heil pizza með einu áleggi á mann. Allur hópurinn tekur það sama.
  • Gos eða safi

Gildir sunnudaga–fimmtudaga og til kl. 18:00 á laugardögum. Lágmark 10 manns.

Reiknaðu út fyrir hópinn

Barnaafmæli

Fyrir 10–14 ára

3.998 kr. á mann

  • 18 holu minigolf
  • 90 g hamborgari með osti, sósu, káli og frönskum, eða hálf pizza með einu áleggi á mann. Allur hópurinn tekur það sama.
  • Safi með matnum
  • Íspinni fyrir alla í kveðjugjöf

Gildir mánudaga til miðvikudaga frá 16:00–18:00. Leyfilegt er að koma með köku frá löggiltum bakara, eins og Myllunni.

Reiknaðu út barnaafmælið

Spurt og svarað.

Hvað þurfum við að vera mörg?

Hópatilboðin gilda fyrir 12 manns eða fleiri, allt að 250. Tilboðin fyrir íþrótta- og skólahópa og barnaafmæli gilda frá 10 manns.

Er fyrirspurnin bindandi?

Nei. Þið sendið fyrirspurn með óskadegi og tíma, ekkert er greitt strax og öllu má breyta. Við staðfestum framboðið í tilboðinu sem við sendum ykkur.

Getum við spilað bæði minigolf og pílu?

Já. Einn leikur er innifalinn í pakkanum. Takið báða fyrir 1.998 kr. á mann og þið fáið 10% afslátt af leikjunum.

Hvernig virka drykkirnir?

Drykkirnir eru á hópaverði og bætast við í reiknivélinni. Áfengir drykkir seljast 10 stk. eða fleiri, bjór og léttvín teljast saman.

Hvaða salir eru í boði fyrir hópa?

Hlaðan, stóri salurinn, tekur 150 til 250 manns í sæti og þar eru 5 risaskjáir og skjávarpi. Stofan er minni sérsalur fyrir um 50 manns með skjávarpa, sér hljóðkerfi og risaskjá. Hópar stærri en 150 mega koma með sitt eigið skemmtiatriði.

Getur fyrirtækið fengið reikning?

Já. Veljið Fyrirtæki greiðir í fyrirspurninni og sláið inn kennitölu fyrirtækisins. Nafnið fyllist úr fyrirtækjaskrá og þið getið bætt við netfangi bókhaldsins.

Má koma með köku í barnaafmælið?

Já, það má koma með köku frá löggiltum bakara, eins og Myllunni.

Staðsetning

Skútuvogur 2
104 Reykjavík

Leiðarlýsing
Opnunartími
Mánudagur til fimmtudagsÍ dag16:00–22:00
FöstudagurÍ dag16:00–00:00
LaugardagurÍ dag11:30–00:00
SunnudagurÍ dag11:30–22:00
Opið í dag
Hópar, heyrðu í okkur 419 0000 minigardurinn@minigardurinn.is
Reikna verð