Hvað þurfum við að vera mörg?
Hópatilboðin gilda fyrir 12 manns eða fleiri, allt að 250. Tilboðin fyrir íþrótta- og skólahópa og barnaafmæli gilda frá 10 manns.
Er fyrirspurnin bindandi?
Nei. Þið sendið fyrirspurn með óskadegi og tíma, ekkert er greitt strax og öllu má breyta. Við staðfestum framboðið í tilboðinu sem við sendum ykkur.
Getum við spilað bæði minigolf og pílu?
Já. Einn leikur er innifalinn í pakkanum. Takið báða fyrir 1.998 kr. á mann og þið fáið 10% afslátt af leikjunum.
Hvernig virka drykkirnir?
Drykkirnir eru á hópaverði og bætast við í reiknivélinni. Áfengir drykkir seljast 10 stk. eða fleiri, bjór og léttvín teljast saman.
Hvaða salir eru í boði fyrir hópa?
Hlaðan, stóri salurinn, tekur 150 til 250 manns í sæti og þar eru 5 risaskjáir og skjávarpi. Stofan er minni sérsalur fyrir um 50 manns með skjávarpa, sér hljóðkerfi og risaskjá. Hópar stærri en 150 mega koma með sitt eigið skemmtiatriði.
Getur fyrirtækið fengið reikning?
Já. Veljið Fyrirtæki greiðir í fyrirspurninni og sláið inn kennitölu fyrirtækisins. Nafnið fyllist úr fyrirtækjaskrá og þið getið bætt við netfangi bókhaldsins.
Má koma með köku í barnaafmælið?
Já, það má koma með köku frá löggiltum bakara, eins og Myllunni.