Viðburðirí Minigarðinum.

Leikkvöld, pub quiz, karaoke og bardagakvöld. Taktu frá borð og vertu þar sem hlutirnir gerast.

Miðar og borð í einni bókun Miðarnir greiðast á netinu Club-meðlimir frétta fyrst

Næst á dagskrá í Minigarðinum.

Veldu viðburðinn og kauptu miða. Hann opnast í bókuninni, þegar valinn.

Boltinn á risaskjánum.

Man Utd, Liverpool, Chelsea og Arsenal í öllum keppnum. Bókaðu borð á leikinn, dagskráin uppfærist sjálf.

Þú velur kvöldið, við geymum sætið.

Veldu viðburð eða leik

Ýttu á Kaupa miða eða Bóka borð og bókunin opnast með valið þegar inni.

  • Þú velur hvað þið eruð mörg

Greiddu á netinu

Miðar á viðburði greiðast á netinu um leið og þú bókar.

  • Allt að 20 miðar í einni bókun

Mættu og njóttu

Sýndu miðann við innganginn. Á leik velur þú sjálfur hvort þú mætir hálftíma eða klukkutíma fyrir leik.

  • Miðinn birtist um leið og bókunin er staðfest

Misstu ekki af neinu.

Club-meðlimir frétta af viðburðum fyrstir og fá gott stöff í leiðinni.

Spurt og svarað.

Hvernig kaupi ég miða á viðburð?

Ýttu á Kaupa miða við viðburðinn. Bókunin opnast með viðburðinn valinn, þú velur fjöldann og greiðir miðana á netinu.

Hvaða leikir eru sýndir?

Leikir Man Utd, Liverpool, Chelsea og Arsenal í öllum keppnum, enski boltinn, bikararnir og Evrópukeppnirnar. Dagskráin á síðunni uppfærist sjálf mánuð fram í tímann.

Hvenær á ég að mæta á leik?

Þú velur sjálfur hvort þú mætir hálftíma eða klukkutíma fyrir leik og borðið er tekið frá á þeim tíma. Byrji leikurinn fyrir opnun opnum við korteri fyrir leik.

Af hverju sé ég ekki alla leiki?

Skjáirnir fyrir boltann eru tveir. Skarist fleiri leikir sýnum við tvo þeirra, og á stórum viðburðakvöldum eins og bingóinu er salurinn undirlagður og enginn bolti sýndur.

Staðsetning

Skútuvogur 2
104 Reykjavík

Leiðarlýsing
Opnunartími
Mánudagur til fimmtudagsÍ dag16:00–22:00
FöstudagurÍ dag16:00–00:00
LaugardagurÍ dag11:30–00:00
SunnudagurÍ dag11:30–22:00
Opið í dag
Hafðu samband 419 0000 minigardurinn@minigardurinn.is
Bóka